Rúmlega tvítugur í virkilega slæmum málum
Rúmlega tvítugur ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum tók úr umferð í gær var í slæmum málum svo ekki sé meira sagt. Hann hafði aldrei öðlast ökuréttindi. Hann var grunaður um fíkniefnaakstur, sem hann játaði. Bifreiðin sem hann ók var á þremur negldum hjólbörðum.
Auk hans voru þrír ökumenn teknir úr umferð í vikunni vegna gruns um fíkniefnaakstur.
Þá voru tíu ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók mældist á 143 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.