Nýjast á Local Suðurnes

Rölt og hjólað með bæjarstarfsfólki og rýnt í hvað betur má fara

Í dag, miðvikudaginn 24. júní gefst íbúum Grindavíkur tækifæri á að ganga og hjóla um Grindavík með starfsfólki Grindavíkurbæjar og fulltrúum Hjólafærni á Íslandi.

Gönguferðin hefst við íþróttahúsið kl. 13:00 og hjólaferðin kl. 14:45. Markmiðið með ferðunum er að rýna það sem betur má fara og því gefst einstakt tækifæri til að eiga samtal við starfsfólk sveitarfélagsins. 

Ferðirnar eru liður í Hjóla- og göngudögum í Grindavík 2020