Rólegt í Garði - Krissi hverfislögga passar upp á að allir hagi sér vel - Local Sudurnes
Lögreglustjóri kemur árlega á fund í Garði með sínu fólki, þar sem fjallað er um ýmis mál, þar á meðal er farið yfir margþætta tölfræði um verkefni lögreglunnar. Slíkur fundur var haldinn á dögunum á skrifstofu sveitarfélagsins. Ef tekið er mið af tölfræði lögreglunnar, þá er mjög rólegt og lítið sem kemur upp á í Garðinum, sem er mjög ánægjulegt. Lögreglan leggur sig fram um að eiga gott samstarf við sveitarfélögin og samskipti starfsfólks sveitarfélagsins við lögregluna eru regluleg og góð. Þetta kemur fram í pistli bæjarstóra á heimasíðu sveitarfélagsins. Þá kemur að auki fram í pistlinum að Krissi hverfislögga hafi aðsetur á bæjarskrifstofunni, lögreglan hugsar vel um samfélagið í Garði, segir bæjarstjórinn Magnús Stefánsson. Meira frá SuðurnesjumÁhugi á að setja upp æfingasvæði fyrir motorcross í GarðiStarfsfólk frá Isavia til starfa á LandspítalaGreiða út rúmar fimm milljónir króna vegna hækkunar nefndarlaunaMánaðarlaun kjörinna fulltrúa í Garði hækka um 26% – Taka mið af þróun launavísitöluLeggja til að Kadeco ráðstafi lóðum í eigu ríkisins á nýReiði í Reykjanesbæ eftir að börn voru áreitt í strætóStyrktu ýmis félög um fjórar milljónir króna eftir vel heppnaða skötuveislu – Myndir!Uppsögn Margrétar á sér langan aðdraganda – Yfirlýsing stjórnar Kkd. KeflavíkurKallað eftir betri internettengingu í Reykjanesbæ – Bæjarstjóri boðar [...]