Nýjast á Local Suðurnes

Róbert fer í greiningu á sameiningarkostum

Sveitarstjórnarfólk í Vogum ræddi á dögunum tillögu þess efnis að Sveitarfélagið fái Róbert Ragnarsson ráðgjafa til að vinna valkostagreiningu um mögulega sameiningu við önnur sveitarfélög. Tillagan var samþykkt og því mun vinna við valkostagreiningu vegna sameiningar sveitarfélaga fara fram. Fulltrúi D-lista sat hjá við atkvæðagreiðsluna.

Fulltrúi L-lista lagði fram bókun vegna málsins:


L-listinn fagnar því að loksins skuli vera farið að athuga með þessa möguleika þó betra hefði verið að gera það kannski fyrr og áður en fjárhagsstaða sveitarfélagsins væri orðin þetta slæm og staða okkar til samninga minnkað til muna. L-listinn hefur ætíð (frá upphafi 2010) viljað skoða sameiningarmöguleika sem gætu verið til hagsbóta fyrir íbúa sveitarfélagsins.