sudurnes.net
Rifja upp óhugnanlegt mál í umræðum um öryggisvistun - Local Sudurnes
Félagsmálaráðuneytið leitaði á dögunum til Reykjanesbæjar eftir samstarfi um byggingu og rekstur öryggisgæslu og öryggisvistunar í Reykjanesbæ, en í ráðuneytinu er unnið er að því að finna framtíðarlausn fyrir einstaklinga sem þurfa nauðsynlega á öryggisgæslu og öryggisvistun að halda. Bæjarráð sveitarfélagsins samþykkti fyrir sitt leiti að taka þátt i verkefninu og hefur falið Kjartani Má Kjartanssyni, bæjarstjóra, að vinna áfram í málinu. Skiptar skoðanir eru um málið á meðal íbúa Reykjanesbæjar á samfélagsmiðlum, en töluverðar umræður hafa myndast á samfélagsmiðlunum, meðal annars á umræðuvettvangi bæjarbúa, Reykjanesbær – Gerum góðan bæ betri, en þar segir íbúi sem bjó í nágrenni við slíkt úrræði frá reynslu sinni: “…það var ekki góð ákvörðun hjá borginni að fara inn í miðja íbúðabyggð í næsta nágrenni við skóla og leikskóla bjó sjálf í 27 ár í hverfinu og það voru allir mjög uggandi yfir þessari staðsetningu frá upphafi, vona allavega að Kjartan og félagar átti sig á að svona úrræði á ekkert erindi inn í miðja íbúðabyggð.” Þá er á sama vettvangi bent á óhugnanlegt mál sem upp kom á slíku heimili í höfuðborgiunni. Í því tilfelli var karlmaður dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir þrjár grófar líkamsárásir, meðal annars gegn kærustu sinni en einnig forstöðumanni þjónustukjarna í Rangaráseli [...]