Reyndi að ræna skartgripaverslun við Hafnargötu
Ungur karlmaður, líklega á þrítugsaldri, var handtekinn eftir tilraun til vopnaðs ráns í úra- og skartgripaverslun við Hafnargötu.
Frá þessu er greint á Vísi.is en þar segir að ræninginn hafi verið vopnaður hamri og greinilega í annarlegu ástandi að sögn vitna.