Nýjast á Local Suðurnes

Reyna að þjónusta Grindvíkinga

Lokað var fyrir póstþjónustu í Grindavík með skömmum fyrirvara á dögunum og hún færð til Reykjanesbæjar. Töluverð óánægja fylgdi þessari aðgerð sérstaklega þar sem enginn undanfari var á henni eða nokkur tilkynning um að þetta stæði til, segir á vef Grindavíkurbæjar.

Grindavíkurbær setti sig í samband við Póstinn til að fá frekari upplýsingar og ástæðu þess að búið væri að loka fyrirvaralaust. Þau svör fengust að tilkynning um að Landsbankanum yrði lokað (sem deilir húsnæði með Póstinum) hefði komið mjög seint og því hafi ekki verið hægt að tilkynna það tímanlega. Nú sé í skoðun hjá Póstinum hvernig unnt verði að þjónusta íbúa Grindavíkur betur í þeirri aðstöðu sem uppi sé. Sérstaklega sé verið að horfa til útkeyrslu.

Pósturinn hefur þegar hafið keyrslu á sendingum upp að dyrum til íbúa og hyggst áfram gera það eins mikið og því verður við komið segir í svari frá Póstinum. Fyrirtækið muni reyna að gera sitt allra besta til að koma sendingum áleiðs til íbúa án þess að fara þurfi til Reykjanesbæjar að sækja sendingar.