Nýjast á Local Suðurnes

Reykjaneshöfn klár í atvinnuskapandi framkvæmdir

Ýmis verkefni hafa verið í undirbúningi í höfnum Reykjaneshafnar sem skapa bæði störf á framkvæmdatíma sem og til lengri tíma.

Í Helguvíkurhöfn hefur staðið yfir undirbúningur að hafnaraðstöðu sem m.a. skapar mikil tækifæri til atvinnusköpunar í samspili við starfsemi Keflavíkurflugvallar. Jafnframt myndi sú hafnaraðstaða styðja við öryggishlutverk Íslands á Norðurslóðum og skapa möguleika til meiri uppbyggingar á því sviði.

Í Njarðvíkurhöfn hafa verið í undirbúningi lagfæringar á núverandi hafnaraðstöðu sem fælu í sér aukna möguleika fyrirtækja sem þar starfa til að bæta í starfsemi sína, bæði verkefnalega og í fjölgun starfa. Samhliða þeirri uppbyggingu skapast við þær hafnarframkvæmdir möguleikar fyrir nýja starfsemi á svæðinu.

Þessi verkefni eru atvinnuskapandi, bæði á framkvæmdatíma og til lengri tíma. Reykjaneshöfn er tilbúin til framkvæmda strax og að leggja þar með sitt af mörkum til að spyrna við fyrirsjáanlegri þróun mála gegn því að aðrir opinberir aðilar leggi framkvæmdunum það lið sem þarf. Reykjaneshöfn skorar því á ríkisstjórn Íslands að leggja þessum verkefnum lið svo hefja megi framkvæmdir sem allra fyrst til að sporna gegn atvinnuleysi á svæðinu sem nú þegar er orðið yfir 15% og stefnir hærra, segir í fundargerð stjórnar hafnarinnar.