Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi lokað – Allar björgunarsveitir kallaðar út
Vegagerðin hefur lokað Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi vegna veðurs en mjög slæmt skyggni og þæfingur er á vegum á Suðurnesjum.
Allar björgunarsveitir á Suðurnesjum hafa verið kallaðar út til þess að ferja fólk úr bílum sem fastir eru á svæðinu. Lögregla hefur jafnframt hvatt fólk til þess að vera ekki á ferðinni að óþörfu.