Reykjanesbraut lokuð við Straumsvík vegna umferðarslyss – Þrír fluttir á slysadeild
Reykjanesbraut er lokuð fyrir umferð um óákveðinn tíma frá Straumsvík að Kúagerði vegna umferðaróhapps. Þetta kemur fram í tilkynningu sem lögreglan á Suðurnesjum sendi frá sér á Facebook-síðu sinni rétt í þessu.
Búist er við að Reykjanesbrautin verði lokuð í nokkurn tíma, en lögregla á höfuðborgarsvæðinu fer með málið.
Mbl.is hefur eftir Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins að harður tveggja bíla árekstur hafi orðið á veginum og eru lögregla og slökkvilið enn að störfum. Fjórir einstaklingar voru í bílunum tveimur og voru þrír þeirra fluttir á slysadeild til aðhlynningar.