sudurnes.net
Reykjanesbær undirbýr endurfjármögnun 8,4 milljarða skuldar - Local Sudurnes
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum í gær að veita bæjarstjóra heimild til að vinna að endurfjármögnun 8,4 milljarða skuldar við Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins (LSR). Með endurfjármögnuninni mun Reykjanesbær kaupa aftur eignir sem seldar voru til Eignarhaldsfélagsins Fasteignar á sínum tíma en leigðar til baka fyrir grunnþjónustu sveitarfélagsins s.s grunnskóla, leikskóla og íþróttamannvirki. Núverandi skuld við LSR er til 25 ára og ber 4,2% vexti auk verðtryggingar. Eins og aðstæður eru á markaði í dag binda bæjaryfirvöld vonir við að hægt verði að lækka vexti umtalsvert og þar með fjármagnskostnað um 250 til 300 milljónir á ári. Samkvæmt lánasamningum ber lánið 0,5% uppgreiðslugjald sem fellur niður í lok febrúar 2021. Það getur hins vegar tekið tíma að safna svo hárri lánsfjárhæð svo ætlunin er að nota næstu mánuði til þess í samvinnu við Lánasjóð sveitarfélaga. Stefnt er að því að taka verðtryggð og óverðtryggð lán með lánstíma frá 10-35 ár. Meira frá SuðurnesjumAtkvæðagreiðsla um yfirvinnubann – Myndi hafa mikil áhrif á starfsemi KEFReykjanesbær lýkur endurfjármögnun á 8, 4 milljarða skuld250 hermenn og fjórtán orrustuþotur í loftrýmisgæsluOf Monsters And Men hagnast um tugi milljóna – 250.000 miðar seldir á árinuFimm mest lesnu fréttir ársins – Gleðilegt ár!Sterkir Víðismenn lögðu Kára á [...]