sudurnes.net
Reykjanesbær opnar Gagnatorg - Fullt af tölulegum upplýsingum - Local Sudurnes
Gagnatorg Reykjanesbæjar hefur verið opnað. Í Gagnatorgi er að finna ýmsar tölulegar upplýsingar um Reykjanesbæ, svo sem íbúaþróun síðastliðið ár, íbúafjölda í hverfum, atvinnuleysistölur, yfirlit yfir fjölda gesta, rekstrartölur úr öllum málaflokkum og fjármálaupplýsingar. Gagnatorgið er unnið af starfsfólki Hagdeildar Reykjanesbæjar þeim Helgu Maríu Finnbjörnsdóttur og Hirti Harðarsyni. Þau segja markmiðið með Gagnatorginu að gera upplýsingar úr rekstri Reykjanesbæjar aðgengilegar fyrir íbúa og auka gagnsæi stjórnsýslunnar. „Við erum búin að vera að vinna að þessu undanfarna mánuði í samstarfi við DataMarket sem hannar útlitið, en upplýsingarnar birtast í gröfum, línu-, súlu- og skífuritum. Við munum uppfæra þessar upplýsingar mánaðarlega og vonum að íbúar Reykjanesbæjar hafi bæði gagn og gaman af Gagnatorginu,“ segir starfsfólk Hagdeildar. Hægt er að tengjast Gagnatorginu á heimasíðu Reykjanesbæjar. Einnig má tengjast Gagnatorgi hér Meira frá SuðurnesjumStálu úlpum og veski úr verlsun Bláa lónsinsUm 30 fjölskyldur að missa íbúðir – “Ríkið er búið að yfirbjóða leiguna”Geta ekki sofið vegna hávaða – “Ég brjálast!”Sendiherra Póllands heimsótti Reykjanesbæ – Um 4.000 íbúar af pólsku bergi brotnirAllt í rusli á Ásbrú – “Kennum fólki að opna ruslatunnu, setja ruslið ofan í og loka”Hafa áhyggjur af aðgengi íbúa að heilsugæslulæknumGera prófanir sem miða að því að minnka ónæði af flugumferð yfir byggðSlysagildra [...]