sudurnes.net
Reykjanesbær leitar að fjölskylduvænum fyrirtækjum - Local Sudurnes
Reykjanesbær óskar eftir tilnefningum frá starfsmönnum fyrirtækja sem telja sinn vinnustað fjölskylduvænan. Viðurkenningar verða veittar á degi um málefni fjölskyldunnar sem haldinn verður þann 12.mars nk. en tilnefningar þurfa að berast fyrir 14. febrúar. Þetta er í þrettánda sinn sem slíkar viðurkenningar eru veittar og hafa fjölmörg fyrirtæki þegar hlotið nafnbótina “fjölskylduvænt fyrirtæki/stofnun”. Í fjölskyldustefnu Reykjanesbæjar er kveðið á um að árlega skuli veittar viðurkenningar til fjölskylduvænna fyrirtæka í Reykjanesbæ. Með því vill Reykjanesbær hvetja stjórnendur fyrirtækja til að setja sér fjölskyldustefnu. Þetta er í þrettánda sinn sem slíkar viðurkenningar eru veittar og hafa fjölmörg fyrirtæki þegar hlotið nafnbótina “fjölskylduvænt fyrirtæki/stofnun”. Rökstuðningur og/eða fjölskyldustefna fyrirtækisins þarf að fylgja tilnefningunni. Sé fyrirtækið sem þú vinnur hjá fjölskylduvænt, en ekki með formlega fjölskyldustefnu, er tekið við tilnefningu með rökstuðningi og í framhaldinu boðin aðstoð við gerð fjölskyldustefnu. Tilnefningar sendist til Velferðarsviðs Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, 230 Reykjanesbæ, merkt FJÖLSKYLDUVÆN FYRIRTÆKI fyrir 14. febrúar nk. Einnig má senda tilnefningar með netpósti á netfangið fjolskyldan@reykjanesbaer.is. Meira frá SuðurnesjumVann óvart þrjár milljónir krónaReykjaneshöfn býður út förgun á vandræðabátÖskudagur got talent í Fjörheimum á öskudagHafnavegur ekki tengdur við hringtorg – Ekki á skipulagi og fjárveitingu vantarReykjanesbær vill ekki skerða þjónustu við íbúana – Hafa því opið þann 19. [...]