Nýjast á Local Suðurnes

Reykjanesbær kemur til móts við foreldra vegna skerðingar í leik- og grunnskólum

Á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar í morgun fimmtudaginn 19. mars var eftirfarandi ákveðið um gjaldtöku í leik- og grunnskólum á tímabilinu sem takmörkun á skólahaldi gildir:

Leikskólar
• Ekkert gjald fyrir barn sem foreldrar hafa heima á tímabilinu.
• Ekkert gjald fyrir barn í leikskóla sem er lokað á tímabilinu.
• 50% gjald fyrir barn sem er annan hvern dag í leikskóla á tímabilinu.
• 100% gjald fyrir barn sem er alla daga í leikskóla vegna forgangs.

Grunnskólar
Vegna skertrar þjónustu í Frístundaheimilum verður innheimt eftir þeim tímafjölda sem nýttur er hjá hverju barni á tímabilinu.

Endurútreikningur gjalda getur tekið einhvern tíma og því munu reikningar mögulega berast seinna en venjulega og eru foreldrar beðnir um að sýna því skilning, segir í tilkynningu á vef Reykjanesbæjar.