sudurnes.net
Reykjanesbær býður upp á sveigjanleika til leikskólakennaranáms - Local Sudurnes
Reykjanesbær brást vel við tilmælum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands sem hvöttu sveitarfélög til að styðja við átak fjölgun leikskólakennara. Í því skyni býður bærinn upp á sveigjanleika til að starfsmenn í leikskólum bæjarins geti stundað leikskólakennaranámið með vinnu. Fam kom í frétt Local Suðurnes á dögunum að menntuðum leikskólakennurum á Suðurnesjum hefur fækkað um 20 frá desember 2013 og voru 107 í desember 2014 og um 40 hafa aðra uppeldismenntun að baki. Athygli vekur að rúmlega 60% starfsfólks á leikskólum á Suðurnesjum er ófaglært. 15 leikskólar eru starfræktir á svæðinu og eru starfsmenn um 400. Á dögunum kallaði fræðslusvið Reykjanesbæjar saman þá starfsmenn í leikskólum Reykjanesbæjar sem stundað hafa nám í leikskólakennarafræðum og einnig þá sem voru að byrja sl. haust. Að sögn Ingibjargar Bryndísar Hilmarsdóttur leikskólafulltrúa hafa fáir útskrifast héðan af svæðinu á undanförnum árum og því sé það einkar ánægjulegt hversu námshópurinn er stór. Meira frá SuðurnesjumFrá ritstjóra: Er lítið um hæft starfsfólk í Reykjanesbæ?Heildarkostnaður við endurbætur á Hótel Keflavík kominn yfir 300 milljónirEndurskoðað skipulag í fjárhagsaðstoðarmálum skýrir fækkunFjöldi gististaða á Suðurnesjum margfaldastHaraldur Axel ráðinn skólastjóri HeiðarskólaFáir ætla að endurnýja leigusamninga við Tjarnarverk ehf.Sakar Suðurnesjafyrirtæki í gjaldþrotameðferð um óheiðarleg vinnubrögðKeflavíkurflugvöllur lokast sjaldan vegna veðursÍLS og Neytendasamtökin fengið fjölda [...]