sudurnes.net
Reykjanesbær boðar Umhverfisstofnun á fund - "Munum ekki styðja rekstur sem skaðar íbúa" - Local Sudurnes
Bæjarráð Reykjanesbæjar mum funda með fulltrúum Umhverfisstofnunar næstkomandi fimmtudag, í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar um magn arsens í útblæstri frá verksmiðju United Silicon í Helguvík. Mikil umræða hefur verið í gangi á samfélagsmiðlunum undanfarna daga, eftir að DV og RÚV birtu umfjallanir um að arsenmengun frá verksmiðju United Silicon sé langt yfir þeim áætlunum sem fyrirtækið gerði ráð fyrir í umhverfismati og þeim umhverfismörkum sem leyfileg eru. Fulltrúar Reykjanesbæjar hafa verið í sambandi við fulltrúa Umhverfisstofnunnar undanfarna daga og að fyrirhugað er að fulltrúar stofnunnarinnar mæti á fund bæjarráðs næstkomandi fimmtudag. Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar segir að Reykjanesbær muni ekki styðja rekstur sem skaðar íbúa. “Við höfum verið í sambandi við Umhverfisstofnun undanfarna daga og munu fulltrúar stofnunarinnar koma til fundar við bæjarráð nk. fimmtudag. Við munum ekki styðja rekstur sem skaðar íbúa.” Sagði Guðbrandur í samtali við Suðurnes.net Meira frá SuðurnesjumNauðsynlegt að verksmiðja USi sé í gangi á meðan úttekt fer framMannleg mistök orsökuðu mæliskekkjuEkki gert ráð fyrir losun arsens í matsskýrslu Thorsil – Hafa sömu heimildir og USiStyrkur arsens í andrúmslofti hefur margfaldast eftir að framleiðsla hófst hjá USi í HelguvíkReykjanesbær hefur trú á að Landsnet uppfylli orkusamningaBæjarráð Reykjanesbæjar: Nauðsynlegt að stöðva rekstur verksmiðju USi hið fyrstaRannsaka upplýsingaleka lögreglunnar [...]