Nýjast á Local Suðurnes

Réttindalaus stöðvaður með eftirför – Ók langt yfir hámarkshraða

Réttindalaus ökumaður sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglumanna á Suðurnesjum um helgina þegar þeir hugðust athuga með ástand hans. Þegar honum voru gefin merki, með forgangsljósum lögreglubifreiðarinnar, um að stöðva aksturinn gaf hann í og tók fram úr tveimur bifreiðum þrátt fyrir að á þeim vegarkafla sé bann við framúrakstri.

Honum var veitt eftirför og  eftir alllangan akstur, þar sem hann ók langt yfir hámarkshraða, beygði hann loks inn á bifreiðastæði og lauk þar með akstri hans. Maðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöð, grunaður um fíkniefnaakstur, auk fyrrgreindra brota.