Nýjast á Local Suðurnes

Réttindalaus gripinn á fleygiferð

Lögreglan á Suðurnesjum hefur kært á þriðja tug ökumanna fyrir of hraðan akstur það sem af er vikunni. Einn þeirra, erlendur ferðamaður, reyndist aldrei hafa öðlast ökuréttindi og játaði hann brot sín. Annar sem ók Reykjanesbrautina á 127 km hraða var með farþega í bifreiðinni sem hann  þekkti ekki til. Leikur grunur á að þar hafi verið svokallaður „skutlari“ á ferð.

Þá voru fáeinir teknir úr umferð vegna gruns um vímuefnaakstur í umdæminu.