Rannsaka upplýsingaleka lögreglunnar á Suðurnesjum til blaðamanns
Lögmenn Magnúsar Garðarssonar, stofnanda og fyrrverandi forstjóra United Silicon í Helguvík, telja að Atli Már Gylfason, fyrrverandi blaðamaður á DV hafi haft óvenju greiðan aðgang að upplýsingum varðandi árekstur forstjórans fyrrverandi á Reykjanesbraut, en Magnúsi var gert að hafa ekið Teslu bifreið sinni á 183 kílómetra hraða og valdið slysi. Lögreglustjóranum á Vesturlandi hefur verið falið að rannsaka upplýsingalekann.
DV birti ítarlegar fréttir af málinu og telja lögmenn Magnúsar að upplýsingarnar hlytu að koma frá lögreglunni á Suðurnesjum, sem rannsakaði málið í fyrstu, eða héraðssaksóknara sem tók við rannsókninni. Frá þessu er greint á vef mbl.is og í samtali við vefinn staðfesti ritstjóri DV að hann, ábyrgðarmaður blaðsins og blaðamaðurinn, Atli Már, hafi mætt til skýrslutöku vegna þessa.