sudurnes.net
Rampa upp Reykjanesbæ - Local Sudurnes
Verkefnið „Römpum upp Ísland“ er með það markmið að koma upp þúsund nýjum römpum um allt Ísland á næstu fjórum árum. Forsvarsmenn verkefnisins hafa einsett sér að gera þúsund veitingastaði og verslanir í einkaeigu, þar sem aðgengi er ábótavant, aðgengilegar hreyfihömluðum fyrir 10. mars 2026. Þetta verður allt saman gert í góðri samvinnu við sveitarfélög, húseigendur og íbúa. Reykjanesbær sóttist eftir samstarfi við Römpum upp Ísland og erum við mjög stolt að greina frá því að samstarfið er hafið. Það er okkur hjartans mál að stuðla að jafnrétti og tryggja aðgengi fyrir alla í bænum okkar og á það ekki síst við um verslanir, veitingarstaði og aðra þjónustu. Framkvæmdir hófust í Reykjanesbæ síðastliðinn föstudag á Hafnargötunni en reynt verður eftir bestu getu tryggja gott aðgengi á meðan vinnu stendur. Meira frá SuðurnesjumLokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar 2. mars í SandgerðiÓkeypis ráðgjöf um markaðssetningu handverksSkemmtilegir viðburðir geta fengið allt að hálfri milljónHandtekinn með amfetamín í sokknum og lyf á víð og dreif um heimiliðÚði og grúði af græjum á sýningu sprengjusérfræðinga – Myndir!Mikilvægt að vel takist til við heildaruppbyggingu alþjóðaflugvallarinsFFGÍR býður foreldrum grunnskólabarna á fyrirlestur með Þorgrími ÞráinssyniAgnar Mar Gunnarsson tekur við kvennaliði NjarðvíkurMikil fjölgun í tilkynningum til barnaverndar – Álag á starfsfólki [...]