sudurnes.net
Ragnhildur L. Guðmundsdóttir: "Hef brennandi áhuga á stjórnmálum og vil láta gott af mér leiða" - Local Sudurnes
Framboðslisti Dögunar í Suðurkjördæmi hefur vakið athygli, en fimm efstu sæti listans, sem leiddur er af Ragnhildi L Guðmundsdóttur, eru skipuð konum. Ragnhildur hefur verið áberandi í umræðum um íbúða- og stóriðjumál að undanförnu, en hún sagðist í spjalli við Suðurnes.net hafa ákveðið að bjóða fram fyrir Dögun þar sem flokkurinn vill ekki ríghalda í það sem er gamalt og úr sér gengið heldur skoða hlutina lausnarmiðað. “Dögun er umbótaafl, vill breytingar og er ekki flokkur sem rígheldur í það sem er gamalt og úr sér gengið heldur alltaf til í að endurskoða málefnin til þess að finna ævinlega bestu lausnina. Dögun vill standa með heimilunum í landinu en ekki að taka stöðu með fjármálakerfinu gegnu heimilunum í landinu.” Sagði Ragnhildur um ástæður þess að hún hafi valið Dögun til að koma sínum stefnumálum á framfæri. Þá segist Ragnhildur hafa brennandi áhuga á stjórnmálum og það sé kjörinn vettvangur til þess að láta gott af sér leiða. “Ég á mér mörg áhugamál, þar á meðal eru ferðalög, lestur og skrif, auk stjórnmála, en ég hef brennandi áhuga á stjórnmálum og vil láta gott af mér leiða.” Sagði Ragnhildur. Raghildur varð að lokum góðfúslega við beiðni um að svara nokkrum spurningum um [...]