Ragnheiður Sara hefur keppni eftir tvo daga – Sjáðu keppnistímana hér!
Árangur Evrópumeistara kvenna í crossfit, Ragnheiðar Söru Sigmundsdóttur sem nú er stödd í Kaliforníu þar sem lokaundirbúningurinn fyrir heimsleikana fer fram verður að teljast ótrúlega góður en hún hefur sigrað hvert mótið á fætur öðru að undanförnu, meðal annars Evrópumótið sem fram fór í júní.
Ragnheiður Sara hefur keppni þann 22. júlí og er hún talin eiga mikla möguleika á að sigra kvennaflokkinn á leikunum samkvæmt fjölmiðlum sem fjalla um keppnina vestanhafs.
Hér fyrir neðan má sjá keppnistímana á leikunum ásamt myndabandi um Evrópuleikana sem fram fóru fyrir skömmu en töluvert er fjallað um árangur Ragnheiðar Söru í myndbandinu.
Fyrir þá sem ætla sér að fylgjast með heimsleikunum þá eru keppnistímarnir hér fyrir neðan:
22. júlí 18:00 – 22:00
24. júlí 18:00 – 05:30
25. júlí 18;00 – 05:30
26. júlí 18:00 – 03:00