sudurnes.net
Rafræn söfnun undirskrifta vegna deiliskipulags í Helguvík er hafin - Local Sudurnes
Undirskriftasöfnun vegna breytinga á deiliskipulagi í Helguvík er hafin á vef Þjóðskrár, island.is, þar er skorað á bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ að láta fara fram íbúakosningu um hvort rétt hafi verið að breyta deiliskipulagi í Helguvík vegna fyrirhugaðs kísilvers. Rafræn stjórnasýsla á vegum Þjóðskrár er framkvæmdaraðili söfnunarinnar og farið er eftir reglugerð um undirskriftasafnanir vegna almennra atkvæðagreiðslna sakvæmt sveitastjórnarlögum. Undirskriftasöfnunin verður opin til 30. júlí næstkomandi. Hægt er að setja nafn sitt á listann hér – Athygli er vakin á að notast þarf við rafræn skilríki eða Íslykil við kosninguna. Meira frá SuðurnesjumUndirskriftasöfnun vegna deiliskipulagsbreytinga hefst 2. júlíVíðir-Reynir á fimmtudag: Ágóði af miðasölu til styrktar fjölskyldu Jóhannesar HilmarsAtvinnuleysistölur í hæstu hæðumBreytingar á akstri strætó yfir jól og áramótÓska skýringa frá sorphirðuverktakaSvona mun flugstöðin líta út eftir breytingar – MyndbandRáðhús og íþróttamannvirki lokuð vegna verkfallsÞrjátíu vilja stýra Kölku1554 fengið mataraðstoð á tveimur mánuðumLýsa yfir óvissustigi vegna jarðskjálftahrinu