sudurnes.net
Rafræn íbúakosning hefst í nótt og stendur til 4. desember - Local Sudurnes
Rafræn íbúakosning um breytingar á deiliskipulagi í Helguvík hefst kl. 02:00 í nótt, aðfaranótt 24. nóvember. Íbúum gefst kostur á að kjósa til 02:00 þann 4. desember og eins oft og hver vill, ef skoðanir kunna að breytast eftir að kosið hefur verið. Svarvalmöguleikar verða tveir, hlynntur eða andvígur deiliskipulagsbreytingunni. Ef merkt er við hvorugt og haldið áfram innan kerfis jafngildir það að skila auðu. Gott er fyrir kjósanda að vera búinn að ganga úr skugga um að hann sé á kjörskrá og sækja um Íslykil eða rafrænt skilríki eigi kjósandi hvorugt. Reykjanesbær opnaði fyrr í mánuðinum kosningavef á slóðinni www.ibuakosning.is þar sem nálgast má allar upplýsingar um kosninguna, forsendur, hvað er verið að kjósa um, sjónarmið bæjaryfirvalda og þeirra sem eru mótfallnir deiliskipulagsbreytingunni, upplýsingar um aðstoð við kosningu og hvernig fólk ber sig að við að nálgast auðkenni til að geta kosið. Einnig er tenging af íbúakosningavefnum yfir í rafræna kjörskrá, bæði á íslensku og ensku. Allar grunnupplýsingar vefjarins eru á íslensku, ensku og pólsku. Kosningaslóðin verður virk frá kl. 02:00 24. nóvember til kl. 02:00 4. desember. Meira frá SuðurnesjumBlakdeildin tekur þátt í Heilsu- og forvarnaviku – Taka vel á móti nýliðumReykjanesbær opnar upplýsingavef vegna kosninga um deiliskipulagsbreytingar25 [...]