sudurnes.net
Rafmagnsvagn kom vel út á Keflavíkurflugvelli - Local Sudurnes
Isavia hefur undanfarna daga verið með rafmagnsvagn til reynslu á Keflavíkurflugvelli. Starfsfólk flugvallarins hefur ekið vagninum um flugvallarsvæðið með það að markmiði að skoða fýsileika þess að nota rútur sem ganga fyrir rafmagni til flutnings farþega frá flugvél að flugstöð. Starfsfólk lýsti yfir mikilli ánægju með vagninn enda er hann hljóðlátur, umhverfisvænn og skemmtilegur í akstri. Isavia hefur þegar til notkunar nokkra rafmagnsbíla innan flugvallarsvæðisins enda eru aðstæður mjög ákjósanlegar, sléttlendi, stuttar vegalengdir og gott aðgengi að rafmagni. Þetta er hins vegar í fyrsta sinn sem gerð er tilraun með rafdrifna hópferðabíla innan flugvallarsvæðisins. Vagninn, sem var fenginn að láni frá bílaumboðinu Öskju, er útbúinn sem strætisvagn og útfærður með hliðsjón af íslenska almenningsvagnakerfinu. Við reynsluaksturinn komu í ljós nokkrir þættir sem mætti breyta til þess að sníða rafvagn sem best að farþegaakstri innan flugvallarsvæðis. Innréttingar þurfa til að mynda að gera ráð fyrir plássi fyrir farangur og því að flestir farþegar kjósa að standa þar sem vegalengdir eru stuttar. Veigamesti þátturinn er þó sá að vagninn sem var prófaður gerir ráð fyrir mikilli orkunotkun og um 200 km drægi. Vegna hagfelldra aðstæðna á flugvellinum þyrfti drægið ekki að vera nema 60-75 km. Isavia gæti því notað vagna með töluvert [...]