sudurnes.net
Rændur á meðan hann fór í sturtu - Local Sudurnes
Íbúi í Reykjanesbæ, sem brá sér í sturtu að næturlagi um helgina varð tveimur armbandsúrum, allmörgum áfengisflöskum og einni rafrettu fátækari þegar sturtuferðinni lauk. Hann hafði heyrt umgang í íbúðinni en taldi að þar væri sambýlingur sinn á ferð. Svo var þó ekki því hinn síðarnefndi svaf svefni hinna réttlátu í rúmi sínu þegar að var gáð. Ljóst var að óboðinn gestur hafði farið um ránshendi meðan á sturtuferðinni stóð enda íbúðin ólæst. Þá var brotist inn í verkstæði í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum og tveimur verkfærakistum stolið úr bifreið sem þar var inni. Meira frá SuðurnesjumTjá sig ekki um aðgerðir lögreglu í GrindavíkDýrum munum stolið á meðan húsráðandi svafHundur beit innbrotsþjófReyndu að ganga að flugstöð til að ná flugi – Lögregla biðlar til fólks að fara ekki illa búið á ferðinaLögregla ræddi við ungan innbrotsþjófLaskaðar lagnir í Grindavík – Eitthvað um rafmagns- og vatnsleysiLeikmenn Grindavíkur fá 300.000 króna bónus fyrir að komast í Pepsí-deildinaBlóðslettur og hnífar á víð og dreif um Bókasafn ReykjanesbæjarÓopnuðum jólapökkum stolið í innbrotiEnn stefnt að opnun World Class í Reykjanesbæ