sudurnes.net
Ræktin til sölu eins og hún leggur sig - Local Sudurnes
Reykjanesbær óskar eftir tilboðum í notuð tæki sem staðsett eru og hafa verið nýtt í sjúkraþjálfunaraðstöðu í kjallara Nesvalla að Njarðarvöllum 4, 260 Reykjanesbæ.Tækin hafa verið nýtt undanfarna áratugi af sjúkraþjálfuninni Ásjá. Tækin voru keypt á árunum 2000 til 2007. Áhugasamir geta óskað eftir tilboðsgögnum með því að senda tölvupóst á innkaupastjori@reykjanesbaer.is. Vinsamlega takið fram hver óskar eftir gögnum ásamt farsímanúmeri og tölvupóstfangi viðkomandi. Óskað er eftir tilboði í öll tækin. Verðtilboð miðast við staðgreiðslu við afhendingu í janúar 2024. Tilboðin þurfa að berast fyrir kl. 11:00 föstudaginn 17. ágúst 2023 á tölvupóstfangið innkaupastjori@reykjanesbaer.is. Allir sem senda inn tilboð fá opnunarfundargerð senda að lokinni opnun Meira frá SuðurnesjumVilja lengri opnunartíma í Sundmiðstöð ReykjanesbæjarÆrslabelgur á ÁsbrúÓska eftir tillögum að jólahúsiKrónan hefur heimsendingarLions lætur sig lestur varða – Halda málþing í ÍþróttaakademíunniJólahús Sandgerðis 2016 – “Það vekur upp barnslega gleði að labba framhjá Heiðarbraut 4”Nexis vill stuðla að bættri líðan með því að nýta vinnutíma til heilsueflingarUmhverfisvænu hreinsiefnin frá Odin Global spara vinnu og fjármuniFFGÍR býður foreldrum grunnskólabarna á fyrirlestur með Þorgrími ÞráinssyniGerðu þitt eigið majónes – Einfalt og fljótlegt