Nýjast á Local Suðurnes

Ræða breytingar sem framundan eru hjá flugrekstraraðilum á Heklufundi

Vetrarfundur Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja og Markaðsstofu Reykjaness verður haldinn föstudaginn 29. janúar næstkomandi. Fundurinn stendur frá klukkan 9 – 10:30.

Á fundinum verður farið yfir horfur í atvinnumálum með hækkandi sól og staðan fyrir sumarið tekin. Farið verður yfir möguleika á uppbyggingu, bókunarstöðu og þær breytingar sem framundan eru hjá flugrekstraraðilum til þess að bregðast við breyttri stöðu ferðaþjónustunnar vegna covid.

Erindi halda Sveinbjörn Indriðason forstjóri Isavia, Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair og Helga Árnadóttir framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Bláa Lónsins.

Nánari upplýsingar og skráning á vef Heklunnar.