Ráðuneyti reynir að þvinga Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum í að falla frá skaðabótamáli - Local Sudurnes
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið vill ekki leiðrétta halla á almenningssamgöngunum frá árinu 2012 upp á 114 milljónir króna nema Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) afturkalli skaðabótamál gegn ríkinu. SSS höfðaði málið eftir að Vegagerðin afturkallaði einkaleyfi á áætlunarleiðinni milli Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og höfuðborgarsvæðisins árið 2013. Dómkvaddir matsmenn áætla að hagnaður af einkaleyfinu sé um þrír milljarðar, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag. SSS sagði upp samningi við Vegagerðina um almenningssamgöngur á Suðurnesjum fyrir ári. Í samningaviðræðum hefur SSS krafist þess að ríkið leiðrétti halla á almenningssamgöngunum frá árinu 2012 upp á 114 milljónir króna, tryggi áfram almenningssamgöngur á svæðinu og leysi dómsmálið. Stjórn SSS segir að ráðuneytið vilji ekki verða við því nema fallið verði frá skaðabótamálinu. Meira frá SuðurnesjumNýskráningum fyrirtækja fjölgar og færri fara í þrotMikilvægt að vel takist til við heildaruppbyggingu alþjóðaflugvallarinsLögreglufélag Suðurnesja vill hraða stjórnsýsluúttekt á embætti ríkislögreglustjóraKeflavíkurflugvöllur lokast sjaldan vegna veðursHrópandi blaðamaður á stuttbuxum elti stjörnulögfræðing á röndumAfsláttur af notendagjöldum á Keflavíkurflugvelli minnkar árstíðarsveiflurMargir bíða eftir félagslegu húsnæði – Fimm fjölskyldur fengið úthlutað það sem af er áriÁkærðir fyrir fjölda lögbrotaErfitt að umbuna lögreglu vel unnin störf – Hátt hlutfall yfirmanna á SuðurnesjumGóð afkoma hjá Isavia – “Nauðsynlegt [...]