sudurnes.net
Ráðuneyti gerir athugasemd við umfjöllun fjölmiðla um ívilnunasamning United Silicon - Local Sudurnes
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur sent frá sér athugasemd vegna umfjöllunar fjölmiðla um málefni kísilmálmvers United Silicon. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að fram hafi komið misskilningur þess efnis að ívilnanasamningur fyrirtækisins við ríkið hafi verið úrskurðaður ólöglegur af Eftirlitsstofnun EFTA. Sú fullyrðing er ekki á rökum reist að sögn ráðuneytisins. Tilkynning ráðuneytisins í heild sinni: Í umfjöllun fjölmiðla um málefni kísilvers United Silicon hefur komið fram misskilningur þess efnis að ívilnanasamningur fyrirtækisins við ríkið hafi verið úrskurðaður ólöglegur af Eftirlitsstofnun EFTA. Af þessu tilefni vill atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið gera eftirfarandi athugasemd. Samningur sá sem vísað er til og Eftirlitsstofnun EFTA sagði vera ólögmætan kom aldrei til framkvæmda. Hann var gerður við Íslenska kísilfélagið ehf., Tomahawk Development á Íslandi ehf. svo og GSM Enterprises LLC og var undirritaður 17. febrúar 2011. Það fjárfestingarverkefni laut að því að reisa og reka 50 þúsund tonna kísilver í Helguvík. Fjárfestingarverkefnið varð aldrei að veruleika og framkvæmdir hófust ekki. Fjárfestingarsamningurinn var því felldur niður. Ekki voru veittar neinar ívilnanir á grundvelli fjárfestingarsamningsins og því ekki forsendur til að krefjast endurheimtu. Þann 9. apríl 2014 var aftur á móti undirritaður fjárfestingarsamningur milli ríkisstjórnar Íslands og United Silicon hf. um byggingu og rekstur 21 þúsund tonna kísilvers í Helguvík [...]