sudurnes.net
Ráðið tímabundið í stöðu byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar - Local Sudurnes
Sveinn Björnsson byggingafræðingur og löggiltur aðalhönnuður hefur tekið tímabundið við stöðu byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef sveitarfélagsins. Sveinn hefur á undanförnum árum starfað við eignaumsýslu hjá Reykjanesbæ. Sveinn hefur margs háttar reynslu af byggingafræði og starfaði um skeið sem byggingarfulltrúi í Stykkishólmi. Sveinn hefur auk þess unnið hjá Tækniþjónustu SÁ ehf., OMR verkfræðistofu ehf., THG Arkitektum ehf., Almennu Verkfræðistofunni hf. og verið sjálfstætt starfandi. Byggingafulltrúi Reykjanesbæjar sagði upp störfum á dögunum, eftir að í ljós kom að byggingar United Silicon í Helguvík væru of háar miðað við gildandi deiliskipulag. Meira frá SuðurnesjumDagskrá Sjóarans síkáta glæsileg að vanda – Síðan skein sól á risadansleikAfskriftakóngur stórgræðir á viðskiptum við KadecoFélag í jafnri eigu athafnamanns og framkvæmdastjóra Kadeco sýslar með eignir á ÁsbrúSveinn ráðinn í stöðu byggingarfulltrúaStarf byggingafulltrúa Reykjanesbæjar auglýst laust til umsóknarKísilver í gjörgæslu bankastofnana – Reynsluboltar taka sæti í stjórn USi í HelguvíkUnited Silicon: Skoteldar um áramót gætu verið skýring á háu gildi á arseniFyrsta kísilmálmverksmiðjan í Helguvík gangsettFesta: Arðsemi fjárfestingar í USi metin góð – Vonast eftir að félagið haldi áfram rekstriRúmlega tuttugu teknir fyrir hraðakstur – Erlendir ökumenn greiddu háar sektir