sudurnes.net
Ráðhús og íþróttamannvirki lokuð vegna verkfalls - Local Sudurnes
Verkfall félagsmanna BSRB hófst í morgun eftir að ekki náðust samningar á milli aðila. Verkfallið mun hafa töluverð áhrif í Reykjanesbæ, meðal annars á starfsemi Ráðhús Reykjanesbæjar, bókasafn, sundlaugar, íþróttamiðstöðvar og Umhverfismiðstöð með eftirfarandi hætti: Ráðhús Reykjanesbæjar: Afgreiðsla þjónustuvers verður lokuð frá 5. júní til 5. júlí eða þar til verkfall leysist. Eingöngu verður tekið við erindum í gegnum síma 421-6700 og tölvupóst á netfangið reykjanesbaer@reykjanesbaer.isBókasafn Reykjanesbæjar verður opið en opnunartíminn styttur og lokað kl. 16:00. Þjónusta verður skert og fólk hvatt til að nýta sér sjálfsafgreiðsluvél í afgreiðslu við útlán og skil bóka.Umhverfismiðstöð: Verkfallið nær til hluta starfsmanna og verður því skert þjónusta frá 5. júní til kl. 23:59 laugardaginn 17. júní 2023.Sundlaugar og íþróttamannvirki: Verkfall er ótímabundið frá mánudeginum 5. júní og verða því sundlaugar og íþróttamannvirki lokuð þar til verkfall leysist. Þetta mun ekki hafa áhrif á almenna kennslu síðustu daga skólaársins sem hefur farið fram í nokkrum íþróttamannvirkjum. Íþróttaæfingar falla niður í öllum íþróttamannvirkjum og sundlaugum. Hér á vefnum má nálgast upplýsingar um hvert erindum skal beint varðandi ýmsa þjónustu svo sem þjónustu Velferðarsviðs og Umhverfis- og framkvæmdasviðs. UPPLÝSINGAR VEGNA VERKFALLS Meira frá SuðurnesjumGáfu Reykjanesbæ 2000 andlitsgrímurLjósanótt: Kynning hjá Pílufélagi ReykjanesbæjarÓþekktu milljarðamæringarnir kaupa fasteignir á Ásbrú fyrir [...]