sudurnes.net
Ráðherrar Suðurkjördæmis hafa ferðast fyrir tugi milljóna - Local Sudurnes
Þau Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hafa samtals farið í 34 utanlandsferðir á yfirstandandi kjörtímabili, þar af hefur Ragnheiður Elín farið í 22 ferðir og Sigurður Ingi í 12. Þetta er meðal þess sem fram kemur í svörum ráðherranna við fyrirspurn Katrínar Júlíusdóttur á Alþingi. Kostnaðurinn við ferðir ráðherranna beggja, sem farnar hafa verið frá maí 2013 til maíloka 2015, nemur rúmlega 30 milljónum króna. Ragnheiður Elín verið 84 daga á ferðalagi Ferðir ráðherranna hafa verið mislangar og miskostnaðarsamar, þannig fór Sigurður Ingi í 9 daga ferð á til Chile þar sem hann hélt fyrirlestur á Aqua-Sur sem er ráðstefna um sjávarútvegsmál, auk þess sem hann heimsótti fiskeldisstöðvar og vinnslustöðvar í landinu, kostnaður við þá ferð var rúmar 2,3 milljónir króna. Sigurður Ingi hefur samtals verið 48 daga á ferðalagi á þeim tveimur árum sem núverandi ríkisstjórn hefur starfað og er kostnaðurinn við ferðir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tæplega 12 milljónir. Ragnheiður Elín Árnadóttir Ragnheiður Elín hefur verið heldur meira á faraldsfæti en Sigurður Ingi, en hún hefur verið 84 daga á ferðalagi í embættiserindum frá maí 2013, með henni í för hefur verið fylgdarlið á vegum ráðuneytisins í öllum ferðum nema einni, sem var dagsferð í [...]