Nýjast á Local Suðurnes

Ráðgert að reisa tvö stór bílastæðahús á KEF

Ráðgert er að reisa tvö bíla­stæðahús við Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli. Húsin verða sam­tals allt að 100 þúsund fer­metr­ar.

Þetta má lesa í skýrslu VSÓ vegna um­hverf­is­mats fyr­ir­hugaðra fram­kvæmda. Umhverfismatsskýrslan um stækkun Keflavíkurflugvallar hefur verið birt til umsagnar á vef Skipulagsstofnunar og er frestur til að skila inn umsögnum til 2. maí næstkomandi.

Isavia mun halda opinn kynningarfund í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ mánudaginn 3. apríl næstkomandi.

Með stækk­un flug­stöðvar­inn­ar á að mæta væntri fjölg­un farþega á næsta ára­tug, en farþega­spá Isa­via ger­ir ráð fyr­ir að 11,4 til 13,6 millj­ón­ir farþega muni fara um Kefla­vík­ur­flug­völl árið 2032. 

Nánar verður fjallað um stækkun flugstöðvarunnar og umfang framkvæmdanna á næstunni.