sudurnes.net
Pöntuðu fund með bæjarstjóra og viðruðu hugmyndir sínar að hjólabrettagarði - Local Sudurnes
Fjórir ungir Reykjanesbæingar komu til fundar við Kjartan Má bæjarstjóra og Hafþór Barða Birgisson íþrótta- og tómstundarfulltrúa í dag til þess að koma á framfæri hugmynd að inni hjólabrettaaðstöðu í Reykjanesbæ. Að sögn Hafþórs eru hugmyndir drengjanna góðar en sá böggull fylgir þó skammrifi að inni hjólabrettaaðstaða er rúmfrek og erfitt gæti reynst að finna húsnæði í sveitarfélaginu sem passar undir slíkan garð. Ferð drengjanna á bæjarskrifstofurnar var þó ekki fýluferð því þeir fengu kynnigarferð um bæjarskrifstofurnar í fylgd bæjarstjóra auk þess sem þeir fá að koma að skipulagningu hjólabrettamóts sem haldið verður í sumar á einum af úti hjólabrettagörðum Reykjanesbæjar en slíkir garðar eru meðal annar við 88-húsið og Heiðarskóla. Það er ekki flókið að koma hugmyndum á framfæri í Reykjanesbæ Aldeilis flottir fulltrúar ungu kynslóðarinnar og meðvitaðir um sinn lýðræðisrétt þeir Gísli Róbert Hilmisson, Aron Örn Hákonarson, Tómas Ingi Magnússon og Valur Þór Hákonarson. Meira frá SuðurnesjumMiðhluti Hafnargötu 2 verður rifinnKeflavíkurstúlkur bregða á leik með geoSilicaWorld Class opnar í Reykjanesbæ – Korthafar hafa aðgang að öllum stöðvumVilja funda með dagforeldrum vegna fyrirhugaðra gjaldskrárhækkanaKallað eftir betri internettengingu í Reykjanesbæ – Bæjarstjóri boðar til fundarHalla Tómasdóttir: “Ásbrú er frábært dæmi um hvernig við getum nýtt tækifærin”Læknar á HSS nota frítíma í vinnu á [...]