Pokémon-æði á Suðurnesjum – Sjáðu hvar þá er að finna!
Sannkallað Pokémon-æði virðist hafa gripið landann og þar með Suðurnesjamenn, eftir að tölvuleikjaframleiðandinn Niantic gaf út tölvuleikinn Pokémon Go á dögunum. Leikurinn gerist í raunheimum, þar sem spilarar ganga um götur og reyna að fanga lítil furðuleg skrímsli, svokallaða Pokémona, sem leynast víða. Markmiðið er að safna öllum Pókemonum sme menn geta nálgast, en þau eru á annað hundrað eins og er.
Þá eru svokallaðar stöðvar eða gym, eins og það er kallað á ensku og pokestopp víða, en stöðvarnar og stoppin þurfa spilarar að heimsækja. Á pokéstoppunum geta spilarar nálgast ýmsar nytjavörur á borð við pokékúlur, sem notaðar eru til að fanga Pokémona, en stöðvarnar eru staðir sem spilarar geta komið sínum Pokémonum fyrir á og tekið yfir stöðina fyrir sitt lið. Í augnablikinu er boðið upp á þrju lið, gult, blátt og rautt – Bláa liðið er langvinsælast á Íslandi í augnablikinu.
Fjöldi stöðva og pokéstoppa (punkta) er á Suðurnesjum, en alla punkta landsins má finna á Íslandskorti, sem unnið er með Google Maps. Punktarnir eru hins vegar aðeins staðsetningar stöðva og Pokéstoppa, en Pokémonarnir sjálfir geta birst nokkurn veginn hvar sem er, en á fyrrnefndu korti er að finna staði þar sem algengt er að finna megi Pokémona.
Það er ekki hættulaust að ferðast um allar trissur í leit að Pokémonum. Að utan hafa borist fréttir af umferðarslysum þar sem spilarar hafa ekið og leitað samtímis og hefur lögregla í Ástralíu í tvígang þurft að senda út tilkynningu þar sem ökumenn eru beðnir um að spila ekki undir stýri.