sudurnes.net
Plan C á föstudagstónleika - Local Sudurnes
Af óviðráðanlegum orsökum reyndist ekki hægt að bjóða upp á tónleika í gamla slippnum á föstudag eins og stefnt var að. Við deyjum þó ekki ráðalaus og grípum í plan C.Tónleikarnir fara nú fram í B sal íþróttahússins við Sunnubraut 34. Þar verður gestum boðið upp á rjúkandi kjötsúpu að hætti Skólamatar og frábæra skemmtun á sviði. Dagskráin er sannarlega ekki af verri endanum og meðal þeirra sem koma fram eru Sigga og Grétar úr Stjórninni og sjálf diskódívan Páll Óskar auk flottu heimabandanna Midnight Librarian, Demo og Sissu sigurvegara úr söngkeppni framhaldsskólanna og hæfileikakeppni Ljósanætur. Dagskrá á sviði stendur frá kl. 18:00 – 21:00.Boðið verður upp á kjötsúpu frá kl. 18:00 – 20:00. Alla dagskrá er að finna á https://www.ljosanott.is/ Meira frá SuðurnesjumTónleikar og kjötsúpa færð í skjólRisa bakgarðstónleikar í HoltunumKórar Íslands í beinni frá Ásbrú – Myndband!Skötumessan í Garði í kvöld – Fagna 10 ára afmæliHandverkssýning eldri borgara – Fjöldi skemmtiatriða út vikunaJúníus Meyvant á leið í tónleikaferð um heiminn – Þjófstartar í HljómahöllStelpur rokka! með rokksumarbúðir í ReykjanesbæThe Voice: Ellert komst áfram – Hjörleifur datt útÁramótabrennur á Suðurnesjum – Boðið upp á brennu í ReykjanesbæHalda tónleika til styrktar Minningarsjóðs Ölla