Pálmi stýrir Kadeco - Local Sudurnes
Stjórn Kadeco hefur ráðið Pálma Frey Randversson framkvæmdastjóra félagsins. Hann tekur til starfa 1. mars. Alls bárust 67 umsóknir um starfið og fékk stjórn Kadeco Capacent til þess að annast ráðningarferlið, að því er segir í tilkynningu sem birt hefur verið í fjölmiðlum. Pálmi hefur undanfarin ár starfað sem deildarstjóri og verkefnastjóri hjá Isavia við mótun og utanumhald þróunar- og uppbyggingaráætlana Keflavíkurflugvallar. Þá hefur hann jafnframt stýrt hönnunarsamkeppni og forvali vegna þróunaráætlunar, tekið þátt í vinnu við deiliskipulag og aðalskipulag flugvallarins, segir ennfremur. Meira frá SuðurnesjumStefnt að uppbyggingu miðlægs íþróttasvæðis – Framkvæmdir hefjist á næsta áriGjaldþrot ráðgjafa hefur engin áhrif á starfsemi ReykjanesbæjarDaníel Freyr stefnir hátt í áhættuleik – Áhættuakstur og vopnaþjálfun hluti af náminuHelmingur óánægður með þjónustu HSSSilkiþrykk vinnustofa með Gillian Pokalo í Bókasafni ReykjanesbæjarLangir biðlistar eftir húsnæðiReykjanesbær með virkt jafnlaunakerfiÍbúar geta komið sínum sjónarmiðum á framfæri varðandi uppbyggingu íþróttamannvirkjaLeggja til að Íþróttaakademían verði seld og að byggð verði ný fimleikahöllBrynjar Atli og Ísak Óli taka þátt í lokakeppni EM með U17 landsliðinu