Nýjast á Local Suðurnes

Óvissa varðandi horfur á vinnumarkaði – Atvinnuleysi 9,2% í Reykjanesbæ

Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, Karl Sigurðsson, sérfræðingur hjá Vinnumálastofnun og Hildur Jakobína Gísladóttir, forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum mættu á fund Velferðaráðs Reykjanesbæjar í morgun og fóru yfir stöðu og horfur á vinnumarkaði og úrræði sem í boði eru fyrir fólk í atvinnuleit.

Á fundinum kom fram að atvinnuleysi í Reykjanesbæ hafi verið 9,2% í nóvember síðastliðnum og á Suðurnesjum 8,2%. Í máli þeirra kom einnig fram að töluverð óvissa sé varðandi horfur á vinnumarkaði vegna þeirrar stöðu sem er í flugrekstri. Þá kom einnig fram að fundað hafi verið með atvinnurekendum á svæðinu í þeim tilgangi að auka samstarf á milli þeirra og Vinnumálastofnunar.

Þá kom fram að í boði séu starfstengd námskeið fyrir fólk í atvinnuleit á svæðinu og eru þau haldin í samstarfi við Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum og Fisktækniskóla Íslands í Grindavík, en er reynt að miða þau við atvinnulífið á svæðinu. Markmiðið er að ná til sem flestra og eru haldin námskeið á íslensku, ensku og pólsku.