sudurnes.net
Óvenju mörg þjófnaðarmál - Dýrum tækjum stolið - Local Sudurnes
Óvenju mörg þjófnaðarmál hafa komið á borð lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Í gær var tilkynnt um innbrot í bílskúr þar sem munum að verðmæti hátt í 200 þúsund krónur var stolið. Um var að ræða fartölvur, batteríisvél, topplyklasett og hjólatjakk. Þá var tilkynnt um þjófnað á handtösku úr bifreið. Í töskunni voru m.a. seðlaveski og greiðslukort. Sá sem þarna var að verki hirti einnig JBL hátalara af mælaborði bílsins. Þá voru tveir piltar staðnir að hnupli í Bónusverslun. Haft var samband við foreldra þeirra og barnavernd. Loks var aðili staðinn að verki þar sem hann var að gera sig líklegan til að stela tveimur vodkaflöskum. Hann hafði áður verið staðinn að verki í vínbúðinni þegar hann stal tveimur eins líters vodkaflöskum því það athæfi náðist á upptöku í öryggismyndavél. Meira frá SuðurnesjumVerkfærum og dýrum reiðhjólum stoliðLeggja 200 milljónir í rannsóknir í HvassahrauniKettlingar sem týndust á Ásbrú fundust – Annar í ruslatunnu og hinn skaddaður á höfðiVilja tvöfalda laxeldið í VogumVerkfærum að verðmæti um 700 þúsund krónur stolið í innbrotiKeilir eykur námsframboð – Nám í fótaaðgerðafræðum hjá KeiliDýrum tækjum stolið í innbrotiFlugsveit bandaríska hersins við æfingar á B-2 Spirit vélumMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í [...]