Nýjast á Local Suðurnes

Óskað eftir tilnefningum til nýrra verðlauna Reykjanes Geopark

MarkaðsstofaReykjaness og Reykjanes UNESCO Global Geopark hafa ákveðið að veita árlega tvenn verðlaun til einstaklings eða fyrirtækis sem starfar í ferðaþjónustu á Reykjanesi. Annars vegar sérstök hvatningarverðlaun fyrir nýsköpun í ferðaþjónustu en hins vegar verðlaun fyrir vel unnin störf innan greinarinnar.

Hér með er óskað eftir tilnefningum til umræddra verðlauna. Tilnefningum ásamt stuttum rökstuðningi skal skilað á netfangið thura@visitreykjanes.is eða eggert@reykjanesgeopark.is fyrir 15. febrúar nk.

Verðlaunin verða afhent miðvikudaginn 2. mars nk. á opnum morgunverðarfundi um ferðaþjónustu og markaðssetningu á vegum Markaðsstofu Reykjaness og Reykjanes UNESCO Global Geopark. Á fundinum verður haldið áfram að rýna í ímynd Reykjaness auk þess sem horft verður til uppbyggingar á svæðinu.