Nýjast á Local Suðurnes

Óska eftir tilboðum í námsgögn – Fyrst af stóru sveitarfélögunum til að bjóða gjaldfrjáls námsgögn

Reykjanesbær er fyrst af stærri sveitarfélögum landsins til að bjóða upp á gjaldfrjáls námsgögn og hefur nú sett í gang örútboð vegna samþykktar um gjaldfrjáls námsgögn til grunnskólabarna í Reykjanesbæ frá hausti 2017. Útboðið fer fram með aðstoð Ríkiskaupa og má finna upplýsingar um það hér.

Nokkur umræða hefur verið um gjaldfrjáls námsgögn til barna í grunnskólum landsins. Barnaheill hefur m.a. vakið á því athygli að annað brjóti í bága við barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem kveður m.a. á um jöfnuð allra, óháð efnahag, litarhætti og aðstæðum. Samtökin Heimili og skóli hafa einnig vakið athygli á málefninu, sem og ýmis hagsmunasamtök og foreldrar grunnskólabarna. Fræðsluráð Reykjanesbæjar hóf að vinna að málinu snemma á þessu ári sem fékk lyktir með samþykki bæjarráðs.

Að sögn Helga Arnarsonar sviðsstjóra Fræðslusviðs hafa þó nokkrar fyrirspurnir borist vegna málsins frá öðrum stórum sveitarfélögum og segist hann vonast til þess að reynsla þeirra hvetji fleiri stærri bæjarfélög til þess að bjóða upp á gjaldfrjáls námsgögn. Góð reynsla af því sé bæði á Ísafirði og í Sandgerði þar sem það fyrirkomulag hefur verið í mislangan tíma.

„Auk þess sem gjaldfrjáls námsgögn styður við barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem Íslendingar hafa staðfest aðild sína að, þá styður það einnig við fjölskyldustefnu Reykjanesbæjar. Þetta skref er því liður í því að vinna gegn mismunun og styðja börn í að njóta jafnræðis í námi.“ Segir Helgi.