sudurnes.net
Óska eftir hugmyndum um byggðamerki - Local Sudurnes
Í framhaldi af því að sameinað sveitarfélag Sandgerðis og Garðs hefur fengið nafnið Suðurnesjabær, vinnur bæjarstjórn nú að því að láta hanna byggðamerki (logo) sveitarfélagsins. Unnið er að því verkefni í samstarfi við auglýsingastofuna Hvíta húsið, sem mun fullhanna byggðamerkið. Á fundi bæjarstjórnar þann 9. janúar 2019 voru til umfjöllunar hugmyndir að byggðamerki og er markmið að hið fyrsta verði byggðamerkið valið. Bæjarstjórn vill gefa þeim sem vilja, kost á að koma á framfæri hugmyndum um byggðamerki, sem mætti byggja á við hönnun merkisins. Þeim sem vilja koma hugmyndum um byggðamerki á framfæri er bent á að senda þær til bæjarstjóra, í netfangið baejarstjori@gardurogsandgerdi.is. Ekki er óskað eftir teiknuðu eða hönnuðu byggðamerki, heldur hugmyndum um efni merkis sem geta falist í einni setningu eða jafnvel einu orði. Frestur til að skila inn hugmyndum er til miðnættis Meira frá SuðurnesjumReykjaneshöfn óskar eftir greiðslufresti – Boðað til kröfuhafafundarBæjarráð Reykjanesbæjar vill fund með Umhverfisstofnun vegna United SiliconMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnÓfríða stúlkan til sýnis – Var skilað eftir að hafa verið 73 ár í lániVilja reka tjaldsvæði að evrópskri fyrirmynd – Hægt verði að bóka gistingu fyrirframJón Arnór yfirgefur NjarðvíkReyna að halda uppi ferðum á [...]