Nýjast á Local Suðurnes

Óska eftir hugmyndum um byggðamerki

Í framhaldi af því að sameinað sveitarfélag Sandgerðis og Garðs hefur fengið nafnið Suðurnesjabær, vinnur bæjarstjórn nú að því að láta hanna byggðamerki (logo) sveitarfélagsins.  Unnið er að því verkefni í samstarfi við auglýsingastofuna Hvíta húsið, sem mun fullhanna byggðamerkið.  Á fundi bæjarstjórnar þann 9. janúar 2019 voru til umfjöllunar hugmyndir að byggðamerki og er markmið að hið fyrsta verði byggðamerkið valið.

Bæjarstjórn vill gefa þeim sem vilja, kost á að koma á framfæri hugmyndum um byggðamerki, sem mætti byggja á við hönnun merkisins.

Þeim sem vilja koma hugmyndum um byggðamerki á framfæri er bent á að senda þær til bæjarstjóra, í netfangið baejarstjori@gardurogsandgerdi.is.  Ekki er óskað eftir teiknuðu eða hönnuðu byggðamerki, heldur hugmyndum um efni merkis sem geta falist í einni setningu eða jafnvel einu orði.  Frestur til að skila inn hugmyndum er til miðnættis