Opnar Hamborgarabúlluna í Reykjanesbæ
Athafna- og veitingamaðurinn Tómas Tómasson stefnir að opnun Hamborgarabúllunnar í Reykjanesbæ á næstu misserum, en undirbúningur er í fullum gangi eftir því sem fram kemur í viðtali við veitingamanninn í Morgunblaðinu.
Staðsetning Búllunnar mun vera í Keflavíkurhverfi. Búllubíllinn var staðsettur við Nettó í Krosasmóa síðastliðið sumar og gekk sá rekstur ágætlega.