sudurnes.net
Opna vef- og Facebooksíðu vegna kosninga um sameiningu - Local Sudurnes
Opnuð hefur verið vefsíða með upplýsingaefni fyrir íbúa Sandgerðis og Garðs vegna kosninga um sameiningu sveitarfélaganna sem fram fer 11. nóvember næstkomandi. Slóð á vefsíðuna er: sameining.silfra.is. Á vefsíðunni er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um sveitarfélögin hvort fyrir sig og sameinuð. Undir liðnum „Spurningar og svör“ er leitast við að svara helstu spurningum sem kunna að brenna á íbúum auk þess sem hægt er að senda inn spurningar. Á næstu dögum verða bæklingum með upplýsingaefni dreift til heimila í Sandgerði og Garði. Þá hefur verið opnuð sérstök síða á Facebook undir heitinu „Kosningar um sameiningu Sandgerðis og Garðs“. Þar munu einnig birtast upplýsingar og kynningarefni. Meira frá SuðurnesjumSígarettustubbar geta leitt til uppsagnar á leigusamningumÞróttarar í samstarf við Blush – Vilja fjölga iðkendumBrunavarnarmenn komnir á Facebook – Myndband!Ekki í viðræðum við ríkið um sölu á tvö hundruð íbúðum á ÁsbrúBreytingar á leiðakerfi standa – “Verður nóg að gera í skutlinu”Kynna sameiningarkosti fyrir íbúumKoma upp vara vatnsbóliDuus safnahús og Rokksafnið komu vel út úr þjónustukönnunSkemmdarverk unnin á nokkrum bílum – Biðla til foreldra að ræða við börn sínÆrslabelgur á Ásbrú