sudurnes.net
Opna inn á gossvæðið - Local Sudurnes
Opnað hefur verið inn á gossvæðið við Litla-Hrút og er Meradalaleið nú opin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum, sem sjá má í heild hér fyrir neðan. Ríkislögreglustjóri lýsir yfir almannavarnastigi í samráði við viðkomandi lögreglustjóra. Við upphaf eldgossins við fjallið Litla Hrút 10. júlí sl. lýsti ríkislögreglustjóri yfir hættustigi. Var það gert með hliðsjón af alvarleika atburða og þörf á nauðsynlegum viðbúnaði viðbragðsaðila. Hættustund hefst þegar hættustigi eða neyðarstigi almannavarna er lýst yfir og lýkur þegar hættustigi eða neyðarstigi er aflýst. Á hættustundu virkjast valdheimildir sem kveðið er á um lögum um almannavarnir. Á hættustundu er lögreglustjóra heimilt að ákveða að taka í sínar hendur umferðarstjórn, banna dvöl eða umferð á ákveðnum svæðum svo sem með því að girða af eða hindra umferð um þau, þ.m.t. tilteknar fasteignir, taka í sínar vörslur hættulega muni, vísa á brott eða fjarlægja fólk. Fyrirmælum þessu er öllum skylt að hlíta. Meðfylgjandi kort sýnir gönguleiðir og skilgreint hættusvæði að mati Veðurstofu Íslands. Það er ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum að banna dvöl eða umferð almennings á skilgreindu hættusvæði samkvæmt meðfylgjandi korti. Slökkvistarf heldur áfram en talið er óhætt að hleypa fólki inn á Meradalaleið. Lögregla, landverðir og björgunarsveitir verða á svæðinu en lögð [...]