sudurnes.net
Opna bókhaldi Reykjanesbæjar lokað tímabundið - Local Sudurnes
Opna bókhaldi Reykjanesbæjar hefur verið lokað tímabundið af öryggisástæðum. Gagnaleki uppgötvaðist nýverið á viðkvæmum persónugögnum gegnum opið bókhald þriggja sveitarfélaga. Við úttekt á kerfi Reykjanesbæjar greindist ekki leki, en af öryggisástæðum var ákveðið að loka og yfirfara það, svo koma megi í veg fyrir hættu á leka. Opið bókhald gerir sveitarfélögunum kleift að birta opið bókhald bæjarfélagsins á myndrænum og gagnvirkum mælaborðum á heimasíðu sveitarfélaga. Tilgangur með lausninni er að veita íbúum, fjölmiðlum og öðrum sem láta sig rekstur sveitarfélaga varða aukin og einfaldari aðgang að rekstrarupplýsingum í anda opins lýðræðis og gagnsæis hins opinbera. Mælaborðunum er skipti í tvo hluta; annars vegar gjaldahluta og hins vegar tekjuhluta. Tekjur eru brotnar niður á málaflokka, þjónustuþætti og einstaka tekjuliði. Niðurbrot gjalda er sambærilegt en þar er hægt að skoða niðurbrot allt niður á einstaka birgja sveitarfélaga. Við uppbyggingu og upplýsingagjöf í Opnu bókhaldi hafa sérstakar ráðstafanir verið gerðar til að koma í veg fyrir að viðkvæmar upplýsingar séu birtar á vefnum. Ekki er um lifandi gagnatengingu við fjárhagsbókhald að ræða heldur eru gögn uppfærð handvirkt og birt eftir ítarlega yfirferð. Með nýlegri uppfærslum á skýjaumhverfi Microsoft þar sem undirliggjandi Power BI kerfi er vistað opnaðist fyrir þann möguleika að skoða einstakar [...]