Nýjast á Local Suðurnes

Opna ábendingagátt vegna endurskoðunar aðalskipulags

Endurskoðun Aðalskipulags Reykjanesbæjar fyrir árin 2020-2035 fer nú fram og verða fjórir íbúafundir haldnir í Reykjanesbæ dagana 18.-21. nóvember 2019. Markmið fundanna er að kynna íbúum þær breytingar sem stefnt er að og leita álits og þiggja ábendingar íbúa.

Reykjanesbær hefur því opnað ábendingargátt þar sem íbúar geta látið sjónarmið sín í ljós.

Tengill í ábendingargátt er hér

Skipulags- og matslýsingu má nálgast hér

Fundarstaður og dagsetningar eru sem hér segir:

  • Mánudagur 18. nóvember 2019, kl 19:30-21 – fundarstaður Andrews Theater Ásbrú
  • Þriðjudagur 19. nóvember 2019, kl 19:30-21 – fundarstaður Akurskóla Njarðvík
  • Miðvikudagur 20. nóvember 2019, kl 19:30-21 – fundarstaður Heiðarskóla Keflavík
  • Fimmtudagur 21. nóvember 2019 – kl 19:30-21 – fundarstaður Gamli barnaskólinn Höfnum