Nýjast á Local Suðurnes

Opið hús í Keili – Forsetinn stýrir umræðum um framtíð menntunar

Afmælishátíð Keilis verður haldin þann 4. maí 2017, kl. 15 – 16:30, í Andrews Theater á Ásbrú, Reykjanesbæ, en skólinn fagnar 10 ára afmæli um þessar mundir.

Meðal gesta verða Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands og Kristján Þór Júlísson, menntamálaráðherra. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, mun stýra umræðum um framtíð menntunar og Keilir mun veita fyrstu vendinámsverðlaunin fyrir þann kennara sem hefur skarað fram úr í innleiðingu nýrra kennsluhátta. Valdimar Guðmundsson og Jónína Aradóttir sjá um tónlistaratriði auk þess sem Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar spilar.

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞIG Á AFMÆLISDAGSKRÁ OG MÁLÞING UM FRAMTÍÐ MENNTUNAR

Að lokinni dagskrá verður opið hús og léttar veitingar í aðalbyggingu Keilis til kl. 18.

Keilir – Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs hóf starfsemi á Ásbrú í Reykjanesbæ 4. maí 2007. Á þessum tíma hafa samtals 2.799 aðilar útskrifast úr deildum skólans. Í tilefni af afmælisárinu hefur skólinn safnað sögum og viðtölum við hluta þeirra nemenda og birt á heimasíðunni www.keilir.net/10ara